Í fréttum er þetta helst....
Bestur í heimi!!
Dagsetning
9. febrúar 2012
07.04.2007 18:47:18 / Freyja

Úhúhú

Gleðilega páska 2007


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 16:42:20 / Freyja

I´m back.....

Ég ætlaði að fara að blogga eitthvað voðalegt...en svo mundi ég að ég nenni því ekki ;)

Hvað er svosem hægt að segja þegar maður er búinn að vera heima í 4 daga með veikt afkvæmi...þá er maður náttúrulega alveg úr tengslum við umheiminn. En hann Nikola Kristinn er allur að koma til svo að það er aldrei að vita nema það verði hægt að fara útúr húsi um helgina.

Helgin er að koma af fullum krafti og ég veit aldeilis ekkert hvað ég á af mér að gera..það er ekki von á neinum heimsóknum þessa helgina. Það er eiginlega frekar óþægilegt því að það hafa verið gestir hjá okkur næstum allar helgar frá áramótum. Svo þegar maður á "fríhelgi" þá veit maður ekkert í sinn haus.

Bless í bili

Freyja


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 16:43:27 / Freyja

GLEÐILEGT ÁR :)

Jæja, eins og lýðnum ætti að vera ljóst núna þá er ég ekki að nenna að standaí þessu bloggveseni.... Bestu kveðjur til allra

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 11:41:34 / Freyja

GLEÐILEG JÓL...

...GOTT OG FARSÆLT KOMANDI ÁR.

ÞAKKA LIÐIÐ,

KVEÐJA, FREYJA


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 12:23:02 / Freyja

Gaman, gaman

Ég stal þessu frá Siggu sysss... þetta er voða skemmtilegt, vonandi verður fólk duglegt að kommenta á þetta.

GJÖRIÐI SVO VEL

1. Þú segir mér eitthvað handahófskennt um mig

2. Þú segir mér hvaða lag minnir þig á mig

3. Þú segir mér hvaða bragð minnir þig á mig

4. Þú segir mér eitthvað sem meikar bara sens fyrir þig og mig

5. Þú segir mér fyrstu ljósu minningu þína af mér

6. Þú segir mér á hvaða dýr ég minni þig

7. Þú spyrð mig að einhverju sem þú hefur lengi velt fyrir þér um mig

 

Verð hér aftur fljótlega með eitthvað skemmtileg, þegar ég er komin heim í jólafrí segi ég ykkur eitthvað skemmtilegt í tilefni komandi fæðingar frelsarans.

Hugljúfar jólakveðjur

Freyja


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 00:07:16 / Freyja

ÞÁ ER ÞAÐ OPINBERT...

...ÉG ER KOMIN Í JÓLASKAP :)

Ég sá nefninilega Coca Cola auglýsinguna áðan og hún er minn mælikvarði á að komin séu jól!!! ....I´d like to give the world a hope, furnish it with love... Það gerist ekki fallegra en þetta (er alveg búin að gleyma veseninu með seríurnar ;) )

Ég er líka búin að vera með hin ýmsu jólalög á heilanum, það er líka góðs viti. Ég er búin að taka aríur úr lögum eins og ...í kvöld jólin eru að koma...(Jónsi syngur), svo er eitt sígilt lag með Ellý ...jólin, jólin allsstaðar með jólagleði og gjafirnar... Þeir sem standa mér næst vita hvernig ég er þegar ég er með lag á heilanum, þá get ég annað hvort uppúr eins manns hljóði tekið eina setningu úr lagi með svaka stæl og haldið svo áfram að þegja eða brotist út í söng á meðan ég er að segja frá einhveju öðru alveg óskildu. Mamma segist aldrei fatta hvaða lög ég er að syngja, en ég vil nú meina að ég syngi ekki svo illa. Kannski erum við bara ekki alveg á sömu bylgjulengd í músíkinni :D Það reyndar fór alveg með fólkið í kringum mig um daginn þegar ég fór að syngja úr leikfangaauglýsingu ...babyborn, babyborn... nokkrum sinnum við svo mikinn fögnuð 5 ára sonar vinkonu minnar að hann var kominn með lagið á heilann og þegar ég skildi við hann heima hjá sér um daginn var hann á fullu að syngja þetta og var nett að gera mömmu sína pirraða ;) Ég ætla ekki einu sinni að minnast á  Borgarfjarðarlagið  ...darara dírilídírí... ég má ekki hugsa um það þá er það fast í mér í langan tíma.

Er ekki frábært hjá Unni Birnu að hafa unni MISS WORLD?? Ég brosti í gegnum tárin þegar ég sá myndir frá keppninni á www.mbl.is . Það er nú alltaf gaman þegar við Íslendingar fáum viðurkenningu á því hvað við erum með eindæmum falleg þjóð 8). Dettur samt í hug nokkur dæmi um fólk sem ætti ekkert að taka það til sín en fyrir okkur hin er þetta frábær viðurkenning!!!

Kveð í bili, raulandi jólalög :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 14:00:05 / Freyja

Er ekki bara glatað...

...að þykjast vera með bloggsíðu og skrifa aldrei neitt????

Það er sossum ekkert merkilegt að frétta hjá mér, hjakka bara í sama farinu!! Ég er eitthvað að farast úr jólastressi...það eru jólin ekki næstu helgi og þarnæstu heldur helgina þar á eftir!!!! Og ég á eftir að gera ALLT. Einhver gæti spurt hvaða allt það er sem ég á eftir að gera og svarið er einfalt...ekkert, ég geri ekkert fyrir jólin. Svo ég er ekkert alveg að skilja afhverju ég er í stresskasti. Mér finnst bara eins og til að vera fyrirmyndarhúsmóðir eigi ég að vera búin að taka í gegn eldhúsinnréttinguna og baka nokkrar sortir af smákökum, bóna gólfin osfrv. Ég er reyndar búin að setja upp seríur í alla glugga hjá mér, það er ekki hátíð ljóss og friðar sem er mér efst í huga þegar það er gert. Ég var við það að grýta þessum helv.... seríum í ruslið. Ég er kannski ekki sú allra þolinmóðasta hvort eð er en ég er alltaf við það að hengja mig í þessu drasli svo þegar búið er að setja þetta upp með sogskálum þá fara þær að hrynja hver af annarri, svo að þá byrjar bölvið og ragnið aftur 8| En það má ekki misskilja mig ég hlakka voða til jólanna...og mér finnst alveg rosa þægilegt að liggja uppí sófa með kveikt á seríunum.

Það er best að hætta í bili, aldrei að vita nema ég prófi þetta aftur á næstu dögum þar sem þetta er ekki eins erfitt og ég hélt:)

Endilega að skrifa nafnið sitt í kommentin


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 13:49:24 / Freyja

Partítröllið.....Freyja :)

Það er varla til stafur í þessu prófi...á ekkert af þessu við mig nema að ég á nýja Adidasskó!!!

http://www.stilbrot.com/trollafell/konnun/img/partitroll.gif" />


Partítröll


Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.

Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.



Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.



Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.


Hvaða\">http://www.stilbrot.com/trollafell/konnun/">Hvaða tröll ert þú?

Endilega takiði þátt í þessu nær óskeikula prófi.


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.11.2005 00:22:54 / Freyja

Ég hef verið kitluð !!!!!!

Sigríður systir mín kitlaði mig, ekki í fyrsta skipti!!! En þó öðruvísi núna!!! Og þar sem ég er ný í bloggheiminum get ég ekki farið að streitast á móti og verð því að taka þátt í þessu!!! Hér kemur:

1. Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey...

  • Fara aftur í skóla
  • Eignast annað barn
  • Vinna í Víkingalottó
  • Fara í fallhlífastökk
  • Verða mjó
  • Verða amma
  • Vera hamingjusöm

2. Sjö hlutir sem ég get...

  • Nagað á mér táneglurnar
  • Keyrt bíl
  • Talað endalaust í síma
  • Talað serbnesku
  • Skrifað i og y á réttum stöðum
  • Bakað pönnukökur
  • Sagt aulabrandara

3. Sjö hlutir sem ég get ekki...

  • Gert þetta kitl ein (er með syss í símanum)
  • Horft á sjónvarp og talað í síma (bæði í einu)
  • Þolað Elvis
  • Farið í megrun
  • Hreyft á mér litlu tánna
  • Mætt á réttum tíma í vinnuna
  • Verið flink á tölvu

4. Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið...

  • Augu
  • Grátt hár ;)
  • Magavöðvar
  • Snyrtimennska
  • Húmor
  • Heiðarleiki
  • Þolinmæði

5. Sjö frægir sem heilla...

  • David Letterman
  • Freddie Prinze Jr.
  • George Clooney
  • Morrisey
  • Ceca (Svetlana Ratnjatovic)
  • Jón Gnarr
  • Morgan Freeman

6. Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið...

  • Ó mæ god!!!
  • Nákvæmlega!!!
  • Oh, ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja...
  • Bingó!!!
  • Viltu gjöra svo vel..
  • Glæsilegt
  • Frábært

7. Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna...

  • Tölvan mín
  • Símtól
  • Mynd af Nikola
  • Barnabækur
  • Gestarúm
  • Ferðatöskur
  • Ullarsokkur

Ef ég segði að þetta hafi gengið vandræðalaust  þá væri ég að ljúga, og ég geri það helst ekki!!! Þannig að ég er að hugsa um að kitla engann.....

Takk í dag,

 góða nótt :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2005 14:15:45 / Freyja

20 stiga hiti.....

..... í Hollandi þar sem Dragan er!!!!

Og ég er alveg á kafi í snjó á Akureyri, mér er ekki að finnast þetta neitt svakalega réttlátt!! Hann er semsagt að njóta lífsins að horfa á fótbolta. Í 8 daga!!!:cry: Ég bauð fram þjónustu mína sem túlkur fyrir hann og þá sem eru með honum, en þar sem þeir höfðu enga trú á mér í hollensku þá var það afþakkað. Svo bauð ég fram kvennlegt innsæi á fótboltann sem þeir eru að horfa á og það var afþakkað þannig að ég sit eftir. Og við Nikola erum ein heima að vinna og á leikskólanum bara eins og venjulega. Ég verð bara að fara að telja niður dagana þangað til ég fer til útlanda með vinnunni. Við erum nefnilega að fara í "vinnuferð" til Kaupmannahafnar 17.apríl til 20 apríl. Förum út á annan í páskum. Það ætti bara að vera gaman. Ég ætla nú samt ekkert að fara langt á undan sjálfri mér, jólin verða að koma áður maður fer að bíða eftir páskunum.

Um helgina fór ég á Dalvík í þrítugs afmæli til Lilju Báru frænku minnar, það var stelpupartý hjá henni. Þetta þýðir bara eitt og það er að ég er næstí röðinni að fylla þriðja tuginn 8|. En ég hef næstum því ár til að sannfæra mig um að það sé bara gott mál!!!

Ég var að spá i því áðan að venjulega um þetta leyti er ég komin í svakalegt jólaskap og svo dottin úr því fyrir jól. En það bólar ekkert á því núna svo það er aldrei að vita nema ég verði í jólaskapi á jólunum bara. Það væri nú skemmtileg tilbreyting. :D

Bless og takk í dag, Freyja


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.10.2005 17:28:57 / Freyja

Bara orðin nýmóðins....

Jæja þá er mín aðeins komin í takt við tímann!!

Svo er bara að nenna að skrifa eitthvað reglulega. Þetta er bara eins og að vera með dagbók og ég var sko með svoleiðis þegar ég var lítil, samt var ég allaf duglegri að lesa dagbókina hennar Siggu systir en að skrifa í mína eigin. Og ég gæti trúað mér til að þetta verði eitthvað svipað!! Sjáum til....

Blessó


» 5 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti